top of page

ÍBÚÐIR KÍ

Húsnæði í boði fyrir fólk utan af landi í krabbameinsmeðferð

qku4pfc7.jpg

Leiga fyrir íbúðirnar er 2.200 kr. á sólarhring. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl félagsmanna sinna í íbúðunum. Einnig greiða flest krabbameinsfélög á landsbyggðinni fyrir fólk af sínu félagssvæði.

 

Ef Landspítalinn sendir reikning heim til sjúklings fyrir dvölina í íbúðunum getur viðkomandi farið með reikninginn til krabbameinsfélags í sinni heimabyggð sem aðstoðar við að greiða reikninginn.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins eru átta og allar staðsettar á Rauðarárstíg 33 í Reykjavík. Þær eru ætlaðar fyrir sjúklinga og aðstandendur meðan á meðferð stendur. Landspítalinn annast rekstur og úthlutun íbúðanna. 

Jafningjastuðningur

Ráðgjöf

Góðir hálsar

Frískir menn

Traustir makar

Íbúðir

bottom of page