top of page
8dc652d76f633e324136e7035429554d.jpg

Persónuvendarstefna

Framför er aðildarfélag að Krabbameinsfélaginu 

og byggir á sambærilegri persónuverndarstefnu

1. Um Krabbameinsfélagið

 

Krabbameinsfélag Íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, www.krabb.is, sími 540 1900, hér eftir nefnt Krabbameinsfélagið, eru frjáls félagasamtök sem rekin eru fyrir gjafir og styrktarframlög almennings og fyrirtækja. Aðild að því eiga krabbameinsfélög í landinu og önnur áhugamannasamtök sem starfa í samræmi við tilgang félagsins og hlotið hafa samþykki stjórnar þess og aðalfundar. Markmið félagsins eru að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa eftir greiningu og bæta lífsgæði þeirra og aðstandenda. Baráttu okkar við krabbamein eigum við sameiginlega með þjóðinni og gerum okkar besta til að gefa sem flestum færi á að taka þátt í þessu langtímaverkefni með okkur með fjölbreyttum hætti.

Persónuverndarstefna þessi er byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Hún fjallar um þá vinnslu á persónuupplýsingum einstaklinga sem Krabbameinsfélagið er ábyrgðaraðili fyrir en nær ekki til vinnslu aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands á persónuupplýsingum, nema annað sé tekið fram.

Í undirköflum stefnunnar er því nánar lýst hvers konar persónuupplýsingar er um að ræða hverju sinni, hvaðan þeirra er aflað, hver sé tilgangur með vinnslu þeirra, á grundvelli hvaða heimildar vinnslan fari fram og hver séu viðmið varðandi geymslutíma þeirra. Þá er fjallað um, þar sem það á við, hverjir séu viðtakendur upplýsinganna og hvort við miðlum viðkomandi persónuupplýsingum út fyrir EES.

Starfsfólk Krabbameinsfélagsins undirritar trúnaðaryfirlýsingu varðandi þagnarskyldu um allar persónugreinanlegar upplýsingar sem það meðhöndlar í starfi sínu.

Þeim sem leita til Krabbameinsfélagsins og veita félaginu persónuupplýsingar sínar í eftirtaldar vinnslur er í engum tilvikum skylt að veita þær upplýsingar en þær eru jafnan forsenda þess að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem vinnslan lýtur að og afleiðingar þess að upplýsingarnar eru ekki veittar verða því að ekki reynist unnt að veita umbeðna þjónustu.

Engin vinnsla persónuupplýsinga hjá Krabbameinsfélaginu felur í sér eða byggir á sjálfvirkri ákvarðanatöku, þ.m.t. gerð persónusniðs.

2. Hvað eru persónuupplýsingar?

 

Persónuverndarlögin skilgreina persónuupplýsingar sem þær upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Sem dæmi um persónuupplýsingar má nefna: Nafn, símanúmer, heimilisfang, netfang, kennitölu, heilsufarsupplýsingar o.s.frv. Gögn sem ekki eru persónugreinanleg falla ekki undir skilgreininguna.

Þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga er Krabbameinsfélagið ýmist ábyrgðaraðili vinnslunnar eða vinnsluaðili í umboði annarra ábyrgðaraðila (t.d. í tilteknum verkefnum unnum fyrir Sjúkratryggingar Íslands eða Embætti landlæknis).

Þú átt margvísleg réttindi tengd vinnslu persónuupplýsinga, til dæmis rétt á því að vita hvort við vinnum með persónuupplýsingar um þig eða ekki og getur óskað eftir aðgangi að þeim. Sjá nánar í kafla 8.

3. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur með vegna vefsvæða sinna og vefverslunar

 

3.1 Almennt

Krabbameinsfélagið rekur nokkur vefsvæði sem tengjast starfsemi félagsins. Þar má nefna krabb.is, bleikaslaufan.is, mottumars.is, karlaklefinn.is.

Við notum mælingartól frá Google og Facebook í þeim tilgangi að afla almennra upplýsinga um notkun vefsvæðanna (Google Analytics) og til að mæla árangur okkar markaðsstarfs (Facebook Pixel og tengingar við auglýsinganet Google). Þessi tól skrá og vinna með IP-tölur sem heimsóknir stafa frá og tímasetningar heimsókna og eru upplýsingarnar fengnar frá þeim vélum sem heimsækja vefsvæðin. Upplýsinganna er aflað með svonefndum vefkökum en þessar vefkökur eru valfrjálsar og geta þeir sem nota vefsvæðin afþakkað notkun þeirra. Vefkökur eru einnig notaðar til að tryggja rétta virkni vefsvæðanna, svo sem til að passa að réttir hlutir haldist í innkaupakörfu þegar farið er milli vefsíða eða að notendur geti skráð sig inn á vefsvæðin. Vefkökurnar hafa skamman líftíma og framangreindar persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur með eru gerðar ópersónugreinanlegar eftir að unnin hefur verið úr þeim tölfræði eða heimsókn lýkur en aldrei þó lengur en tveimur vikum eftir að þeirra var aflað.

Þessar mælingar sýna okkur fjöldatölur og samtölur varðandi t.d. aldur og kyn notenda hvers vefsvæðis en eru ópersónugreinanlegar í okkar notkun, þótt Facebook og Google búi yfir meiri upplýsingum um eigin viðskiptavini þeirra að baki þeim fjöldatölum.

Þó að við höfum ekki upplýsingar um hvaða einstaklingur er á bak við tiltekna heimsókn á vefsvæði okkar nema þeir gefi okkur upp þær upplýsingar en fyrir viðskiptavini Facebook sem eru eða hafa nýlega verið innskráðir á samfélagsmiðilinn getur Facebook tengt upplýsingar um heimsókn á okkar vef beint við viðkomandi Facebook notanda. Með sama hætti geta auglýsingakerfi Google tengt notkunarupplýsingar við þá persónuprófíla sem þau búa yfir, prófíla sem eru ýmist nafnlausir eða innihalda persónurekjanlegar upplýsingar á borð við nafn, netfang eða símanúmer.

Heimild Krabbameinsfélagsins til að stunda framangreinda vinnslu persónuupplýsinga, þ.e. að stunda vefgreiningu og tryggja nauðsynlega virkni vefsvæða sinna, er sú að félaginu sé það nauðsynlegt vegna lögmætra hagsmuna sinna, nánar tiltekið þeirra að geta veitt notendum vefsvæðanna betri þjónustu og geta tekið upplýstar ákvarðanir um fyrirkomulag vefsvæðanna.

Vefnotendur geta á flestum vefjum Krabbameinsfélagsins sent okkur gögn sem innihalda persónupplýsingar, til dæmis við bókun viðtals eða skoðunar, með því að senda okkur ábendingu um efni eða senda okkur fyrirspurn. Fjallað er um þær vinnslur í kafla 6 hér að neðan.

Loks er hægt að nota vefsvæði félagsins til að leggja af mörkum stakan styrk, kaupa minningarkort, skrá sig sem Velunnarara eða félaga í aðildarfélagi. Fjallað er um þær vinnslur í köflum 4 og 5 hér að neðan. Þær upplýsingar sem veittar eru í tengslum við þær vinnslur eru geymdar í vefumsjónarkerfinu og sjálfkrafa eytt þaðan að 180 dögum liðnum.

 

3.2 Vefverslun Krabbameinsfélagsins

Þegar vörur eru keyptar í vefverslun okkar biðjum við notandann sjálfan um þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta afgreitt pöntunina (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, kennitölu og greiðsluupplýsingar).

Vefverslun Krabbameinsfélagsins er í verslanakerfi írska fyrirtækisins Shopify International Ltd., dótturfélags kanadíska félagsins Shopify Inc. Í vefversluninni er unnið með þær upplýsingar sem notendur gefa upp í kaupferlinu auk tæknilegra upplýsinga um þær vélar sem notendur nota til að versla, þ.e. IP tölur þeirra og tegundir vafra. Shopify notar þessar upplýsingar m.a. til að birta yfirlit yfir notkun í vefverslun Krabbameinsfélagsins og gæti einnig notað þær t.d. til að flýta fyrir skráningu ef sami einstaklingur kaupir vörur í

Gögn Shopify eru vistuð í Írlandi og Kanada en einnig í Bandaríkjunum. Shopify er kanadískt fyrirtæki, en Kanada er meðal þeirra ríkja þar sem lög teljast veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd í skilningi evrópsku persónuverndartilskipunarinnar (GDPR). Þegar Shopify flytur gögn sem það hefur vistað til Bandaríkjanna þá fer það fram á grundvelli reglna um friðhelgisskjöld (e. EU-US privacy shield) samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1250.

Greiðslur í vefverslun fara í gegnum greiðslukerfi Valitor, Netgíró og AUR og hvorki Shopify né kerfi Krabbameinsfélagsins hafa aðgang að greiðslukortanúmerum.

Starfsmenn Krabbameinsfélagsins hafa aðgang að framangreindum persónuupplýsingum tengdum kaupum gegnum kerfi Shopify til þess að geta afgreitt pantanir, í bókhaldstilgangi og til að geta haft samband við viðskiptavin ef upp koma vandamál eða ef hann óskar eftir að haft verði samband við hann vegna frekari stuðnings við félagið. Félaginu er því nauðsynlegt að vinna með upplýsingarnar til að efna samning við notendur vefverslunarinnar um kaup á vörum í henni og til að uppfylla lagaskyldur. Upplýsingar um sölu í vefversluninni geymir félagið í samræmi við skyldur sínar samkvæmt bókhaldslögum en í þeim er kveðið á um að geyma skuli bókhaldsupplýsingar í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

4. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur um styrktaraðila

 

Krabbameinsfélagið hefur lögmæta hagsmuni af því að geta tekið við fjárstyrkjum til starfseminnar og halda góðum tengslum við þá sem sýna áhuga á því að styðja starfsemi og málstað félagsins. Byggt á þeim hagsmunum viðheldur félagið skrá með tengiliðaupplýsingum sem þeir sem gerast stuðningsaðilar veita félaginu (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, kennitölu og greiðsluupplýsingar) þar til viðkomandi óskar eftir því að vera tekinn af þeirri skrá.

4.1 Minningarkort

Styrkja má Krabbameinsfélagið með því að senda minningarkort um látinn ástvin. Hægt er að senda kortin með pöntun á vef félagsins, með símtali eða pöntun í afgreiðslu þess.

Beðið er um þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta gengið frá greiðslu, brugðist við mögulegum vandamálum í greiðsluferlinu og til að koma minningarkorti til aðstandenda, uppfyllt bókhaldslög og skráð þá sem vilja á stuðningsaðilaskrá. Greiðslur fara í gegnum greiðslukerfi Borgunar og kerfi Krabbameinsfélagsins vista engin greiðslukortanúmer. Félaginu er því nauðsynlegt að vinna með upplýsingarnar til að efna samning við hinn skráða um sendingu minningarkorts og veitingu styrks.

Fyrir utan upplýsingar í framangreindri stuðningsaðilaskrá og í vörslu bókhaldsupplýsinga þá eru þær upplýsingar sem eru geymdar tímabundið í vefumsjónarkerfi félagsins eftirtaldar:

  • Nafn hins látna og nafn þess sem sendir

  • Heimili, póstnúmer og staður viðtakanda

  • Nafn, kennitala, heimili, póstnúmer, staður og netfang greiðanda

  • Upphæð gjafar

  • Upplýsingar um hvaða krabbameinsfélag greiðandi vill styrkja
     

4.2 Stakir styrkir og Velunnarar

Styrkja má Krabbameinsfélagið með eingreiðslu eða skrá sig sem Velunnara gegnum vef félagsins, með símtali eða skráningu í afgreiðslu félagsins.

Beðið er um þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta gengið frá greiðslu, brugðist við mögulegum vandamálum í greiðsluferlinu, uppfyllt bókhaldslög og viðhaldið skrá um Velunnara félagsins. Greiðslur fara í gegnum greiðslukerfi Borgunar og kerfi Krabbameinsfélagsins vista engin greiðslukortanúmer.

Fyrir utan upplýsingar í framangreindri stuðningsaðilaskrá og í vörslu bókhaldsupplýsinga þá eru þær upplýsingar sem eru geymdar tímabundið í vefumsjónarkerfi félagsins eftirtaldar:

  • Nafn, heimili, póstnúmer, staður, netfang og símanúmer verðandi Velunnara

  • Upphæð mánaðarlegs framlags

  • Upplýsingar um hvaða félag, ef annað en Krabbameinsfélagið, viðkomandi vill styrkja
     

Einnig geta einstaklingar styrkt félagið með valgreiðslum í banka, kaupum á happdrættismiðum, eða greitt áheit eða styrk með því að senda SMS eða hringja í styrktarnúmer.

Þá geta einstaklingar styrkt Krabbameinsfélagið í gegnum þriðja aðila, svo sem með því að gefa framlag á vefsíðu þriðja aðila. Greiðslunni er miðlað til Krabbameinsfélagsins en félagið vinnur hins vegar ekki frekar með upplýsingar um greiðanda nema hann óski eftir því. Sem dæmi má nefna Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

4.3. Skráning í aðildarfélag

Þegar einstaklingur óskar eftir að gerast félagi í aðildarfélagi Krabbameinsfélagsins á vef félagsins, skráir hann sjálfur eftirfarandi upplýsingar: Nafn, kennitölu, netfang, síma og velur aðildarfélag. Upplýsingarnar eru sendar viðkomandi aðildarfélagi og ekki frekar unnið með þær hjá Krabbameinsfélaginu.

5. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur um starfsmenn, verktaka og sjálfboðaliða.

 

Krabbameinsfélagið vinnur með persónuupplýsingar sinna starfsmanna, verktaka og annarra sem fá greitt fyrir störf í þágu félagsins á grundvelli viðkomandi samninga (t.d. ráðningar- eða verktakasamnings).

Þær persónuupplýsingar sem um ræðir eru tengiliðaupplýsingar viðkomandi (nöfn, heimilisföng, símanúmer, kennitölur, símanúmer og netföng), reikningsupplýsingar og aðrar viðeigandi upplýsingar sem tengjast störfunum, þ.e. upplýsingar hvað varðar starfsfólk um launakjör, viðveru, orlof, starfstengd réttindi og framgang í starfi og um samningskjör verktaka og efndir á samningum við þá. Upplýsinganna er aflað frá viðkomandi starfsfólki og verktökum og viðhaldið með samkeyrslu við tengiliðaupplýsingar í þjóðskrá. Upplýsingar þessar eru notaðar til að hægt sé að uppfylla framangreinda samninga og til að uppfylla lagaskyldur Krabbameinsfélagsins sem vinnuveitandi og verkkaupi þjónustu, auk reglna hvað varðar samþykki og greiðslu reikninga. Eins og að framan greinir ber félaginu skylda samkvæmt bókhaldslögum til að geyma bókhaldsupplýsingar í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

Gögn um starfsmenn þ.e launavinnslur og upplýsingar ásamt launagreiðslum geymast eftir að starfsmenn hafa hætt störfum til að geta staðfest fyrir þá upplýsingar um starfsferil og svarað fyrirspurnum þeirra. Upplýsingar þessar eru ekki notaðar í öðru skyni eftir að störfum lýkur.

Sjálfboðaliðar Krabbameinsfélagsins eru til dæmis fulltrúar í stjórn, Vísindaráði, Stjórn Vísindasjóðs, Stuðningsneti og akstursþjónustu. Félagið vinnur með persónuupplýsingar sjálfboðaliða félagsins eftir því sem við á í hverju verkefni fyrir sig.

Fulltrúar í stjórn, Vísindaráði, stjórn Vísindasjóðs:

Þær upplýsingar sem um ræðir eru nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og sími. Upplýsingarnar eru geymdar meðan aðilar eru í stjórnum eða Vísindaráði og ekki notaðar í öðru skyni eða eftir þann tíma.

Sjálfboðaliðar í Stuðningsneti Krabbameinsfélagsins:

Þær persónuupplýsingar sem um ræðir eru nafn, símanúmer, netfang, tegund veikinda og reynsla til að geta betur sinnt jafningjastuðningi.

Upplýsingarnar eru geymdar meðan aðili er sjálfboðaliði og ekki notaðar í öðru skyni eða eftir þann tíma.

Sjálfboðaliðar í akstursþjónustu:

Þær persónuupplýsingar sem um ræðir eru nafn, heimili, kennitala, netfang, sími, sakavottorð og ökuréttindi í því skyni að öruggt sé að til staðar séu réttindi og geta til að geta sinnt sjálfboðastarfinu.

Upplýsingarnar eru geymdar meðan aðili er sjálfboðaliði og ekki notaðar í öðru skyni eða eftir þann tíma.

Aðildarfélög Krabbameinsfélagsins halda hvert sína félagaskrá og nær þessi persónuverndarstefna eins og að framan greinir ekki til vinnslu þeirra. Allir félagsmenn tilheyra aðildarfélögum og Krabbameinsfélagið heldur ekki neina miðlæga félagaskrá.

Sjálfboðaliðar aðildarfélaganna eru til dæmis leiðbeinendur á námskeiðum, fulltrúar í stjórnum og ráðum. Krabbameinsfélagið heldur ekki utan um skráningar sjálfboðaliða aðildarfélaganna og eru þær einungis í félagaskrám viðkomandi stuðningshópa, aðildarfélaga og verkefnastjóra sjálfboðaliðaverkefna. Starfsmenn Krabbameinsfélagsins hafa ekki aðgang að þeim gögnum og upplýsingarnar eru aðeins notaðar af félögunum til að eiga samskipti og miðla upplýsingum á milli aðila.

6. Bókanir, fyrirspurnir og ábendingar

 

Þær persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur með vegna neðangreindra erinda eru tengiliðaupplýsingar, þ.e. nöfn viðkomandi, nema um nafnlausa fyrirspurn og ábendingu sé að ræða, símanúmer og/eða netfang og tilefni erindis. Unnið er með þessar upplýsingar í þeim tilgangi að geta orðið við óskum eða ábendingum hins skráða sjálfs og geta veitt honum þá þjónustu sem hann óskar eftir. Vinnslan er því nauðsynleg til að efna samning sem hinn skráði er aðili að eða til að gera ráðstafanir að beiðni hins skráða.

 

Bókanir

Upplýsingar sem notendur gefa upp við bókun skoðana, viðtala og skráningu á námskeið og viðburði berast þeim starfsmönnum Krabbameinsfélagsins sem halda utan um bókanir. Aðrir starfsmenn hafa ekki aðgang að þeim og upplýsingarnar eru ekki notaðar í öðrum tilgangi.

Fyrirspurnir og ábendingar

Sama gildir um fyrirspurnir sem sendar eru í gegnum vefi Krabbameinsfélagsins, þær berast einungis þeim starfsmönnum sem taka á móti fyrirspurninni og eftir því sem við á til starfsmanna sem fyrirspurnin beinist til.

Milliliður við bókanir í gegnum vef Krabbameinsfélagsins og fyrirspurnir sendar í gegnum vefi þess, er vefkerfi þjónustuaðila okkar sem hýst er í skýjalausn innan Evrópu (EES). Innsendum gögnum er sjálfkrafa eytt úr vefkerfinu að 180 dögum liðnum og þar fer ekki fram nein frekari söfnun eða úrvinnsla gagna.

7. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur vegna Krabbameinsskrár

 

Með orðinu Krabbameinsskrá er átt við tvennt. Annars vegar er það gagnagrunnurinn Krabbameinsskrá Íslands og hins vegar deildin Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands (KKÍ), sem er deild innan Krabbameinsfélagsins.

Deildin Krabbameinsskrá sér m.a. um rekstur gagnagrunnsins Krabbameinsskrá Íslands samkvæmt samningum (Þjónustusamningur og Vinnslusamningur) við Embætti landlæknis. Landlæknir er ábyrgðaraðili Krabbameinsskrár Íslands, Krabbameinsfélagið er vinnsluaðili og KKÍ sér um framkvæmdina.

Hjá deildinni eru varðveittir þrír gagnagrunnar; Krabbameinsskrá Íslands, Heilsusögubanki og Ættagrunnur. Hverjum sem er er heimilt að nota upplýsingar úr þessum gagnagrunnum við gerð áætlana um gæðaþróun, erfðaráðgjöf og til vísindarannsókna að fengnu leyfi Vísindasiðanefndar.

  • Tilgangur Krabbameinsskrár Íslands er að afla þekkingar um krabbamein hér á landi, hafa eftirlit með greiningu og meðferð krabbameina, tryggja gæði og meta árangur.Upplýsingar til Krabbameinsskrár berast frá rannsóknarstofum í meinafræði og blóðmeinafræði, sjúkradeildum, heilsugæslustöðvum, einstökum læknum, Dánarmeinaskrá og Vistunarskrá heilbrigðisstofnana.

  • Gagnagrunnurinn Heilsusögubankinn geymir upplýsingar um þætti tengda fæðinga- og blæðingasögu, sem konur voru beðnar um að gefa þegar þær mættu í krabbameinsleit á árunumnum 1964-2008. Engar upplýsingar um krabbamein og forstig þeirra eru skráðar í Heilsusögubankann.

  • Gagnagrunnurinn Ættagrunnur er skrá yfir fjölskyldutengsl. Engar upplýsingar um krabbamein eða forstig þeirra eru skráðar. Upplýsingarnar koma frá Erfðafræðinefnd, útgefnum heimildum, kirkjubókum og manntölum.
     

Sjá nánar um verkefni deildarinnar Krabbameinsskrár og þær upplýsingar sem unnið er með í gagnagrunnum deildarinnar. Frekari upplýsingar um vinnsluna veitir ábyrgðaraðili hennar, Landlæknir, sem ber ábyrgð á að tryggja og sýna fram á að vinnslan uppfylli kröfur réttarreglna um persónuvernd, sbr. 23. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

8. Réttindi þín varðandi persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið vinnur

 

Réttur til upplýsinga

Þú átt rétt á upplýsingum um eftirtalin atriði um vinnslu persónuupplýsinga um þig, hvort sem upplýsinganna er aflað frá þér eða annars staðar frá: Upplýsingar um ábyrgðaraðila vinnslunnar, samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa, upplýsingar um tilgang vinnslu, heimild til hennar og viðtakendur persónuupplýsinganna, ef einhverjir eru. Þá átt þú rétt á upplýsingum um geymslutíma persónuupplýsinganna, hver réttindi þín séu varðandi vinnsluna og hvort til standi að vinna upplýsingarnar frekar í öðrum og óskyldum tilgangi.

Þessa upplýsingaskyldu leitast Krabbameinsfélagið við að uppfyllla með því að setja fram og viðhalda þessari persónuverndarstefnu, auk frekari upplýsingagjafar til hinna skráðu eftir því sem hægt er að koma henni við.

Réttur til aðgangs

Þú átt rétt á því að vita hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig eða ekki og getur óskað eftir aðgangi að þeim upplýsingum.

Vegna þess hve viðkvæmar persónuupplýsingar Krabbameinsfélagið og deildir þess vinna með er unnið eftir ströngum vinnureglum varðandi óskir um aðgang að eigin persónupplýsingum.

Ef þú vilt óska eftir aðgangi að eigin persónuupplýsingum þarf að fylla út viðeigandi eyðublað og afhenda það í Skógarhlíð 8 eða senda með tölvupósti á netfangið personuvernd@krabb.is. Nauðsynlegt er að framvísa gildum persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn.

Í framhaldinu verður haft samband við þig varðandi frekara fyrirkomulag á miðlun upplýsinganna til þín. Leitast er við að afhenda gögn innan mánaðar frá mótttöku beiðnarinnar en að öðrum kosti verður þér tilkynnt að töf verði á afhendingu og gerð grein fyrir hvaða ástæður séu fyrir henni.Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi meðferð persónuupplýsinga eða persónuverndarstefnu Krabbameinsfélagsins hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í síma 540-1900 eða senda tölvupóst til persónuverndarfulltrúa okkar gegnum netfangið personuvernd@krabb.is.

Ef þú ert ósátt/ósáttur við vinnslu Krabbameinsfélagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar.

Réttur til leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar, andmæla og til að flytja eigin gögn

Þú átt rétt til að fara fram á það við ábyrgðaraðila að láta leiðrétta persónuupplýsingar þínar, eyða þeim eða takmarka vinnslu þeirra hvað þig varðar eða til að andmæla vinnslu, auk réttarins til að flytja eigin gögn.

Réttur til að afturkalla samþykki

Í þeim tilvikum sem vinnsla persónuupplýsinga þinna byggir á samþykki þínu hefur þú rétt til að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er, án þess þó að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkisins fram að afturkölluninni.

Réttur til að leggja fram kvörtun

Eins og fram kemur hér að framan getur þú leitað til persónuverndarfulltrúa Krabbameinsfélagsins ef þú hefur athugasemd eða fyrirspurn vegna vinnslu persónuupplýsinga þinna. Þá átt þú ætíð rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa Persónuverndar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, símanúmer hjá stofnuninni er 510 9600 og netfang postur@personuvernd.is.

9. Eftirfylgni með persónuverndarstefnu Krabbameinsfélagsins

Frumútgáfa persónuverndarstefnu Krabbameinsfélagsins var samþykkt af stjórn félagsins þann 02.06. 2020. Gildandi persónuverndarstefna hverju sinni er birt á vef félagsins, krabb.is.

Krabbameinsfélagið áskilur sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnu sína, til dæmis ef breytingar verða á því hvernig unnið er með persónuupplýsingar eða ef þörf reynist á að skýra betur einstaka liði.

Persónuverndarstefna þessi var síðast uppfærð 2. júní 2020.

bottom of page