top of page

Ný rannsókn 2016 - tíðari sáðlát minnka hættu á krabbameini í blöðruhálskirtli


Ný rannsókn frá Harvard sem kom út þann 29. mars síðastliðinn hjá European Urology hefur vakið mikla athygli. Gögnum í rannsóknina var safnað á árunum 1992 til 2010 fyrir tæplega 32 þúsund karlmenn. Meðalaldur þátttakenda var 59 ár þegar þeir svöruðu spurningum um hversu oft þeir hefðu sáðlát í hverjum mánuði á mismunandi tímum ævinnar. Þeim var svo fylgt eftir í 18 ár.


Í ljós kom að karlmenn sem sögðust hafa sáðlát 21 sinni í mánuði eða oftar borið saman við þá sem höfðu sáðlát 4-7 sinnum í mánuði, voru í 20% minni áhættu á að greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli. Þetta verndandi samband sást ekki þegar alvarlegri mein í blöðruhálskirtli voru skoðuð sérstaklega eða hjá þeim sem létust úr sjúkdómnum.


Það að hafa sáðlát oft í mánuði á aldrinum 20-29 ára, 40-49 ára og á efri árum var ávallt verndandi gegn krabbameini í blöðruhálskirtli.


Skilaboð eins af höfundum rannsóknarinnar voru þessi:

“Safe sexual activity could be good for prostate health.”

Eða öruggt kynlíf getur verið gott fyrir blöðruhálskirtilinn!


0 views0 comments
bottom of page