top of page

Fyrstu skrefin eftir að þú greinist með krabbamein í blöðruhálskirtli?

Ákvarðanir um hvernig á að meðhöndla krabbamein í blöðruhálskirtli eru ekki teknar upp úr engu. Nýgreiningu fylgir mikið af ruglingslegum upplýsingum og tilfinningum. Margir þættir sem tengjast þessum sjúkdómi geta haft áhrif á það hvernig þú lítur á sjálfan þig, hvernig samskipti þú hefur við aðra og hvernig samskipti aðrir hafa við þig. Á þessum erfiða tíma ertu samt beðinn um að taka mikilvægar ákvarðanir byggðar á tilmælum þinna lækna. Það er skynsamlegt í þessari stöðu að vinna með fjölskyldu, vinum og öðrum aðilum sem hafa fengið sambærilega greiningu til að samræma væntingar og leita stuðnings eftir því sem við á.

Læknar og sérfræðingar

Settu þig í samband við lækni sem er ekki bara sérhæfður í krabbameini, heldur sérhæfður í þeirri tegundar blöðruhálskirtils krabbameins sem þú ert greindur með. Hvernig finnur þú svona lækni? Ef þú ert nýgreindur, byrjaðu á því að ráðfæra þig við þann lækni sem uppgötvaði þitt krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann gæti verið sérfræðingur á þessu sviði eða vísað þér til lækna sem eru sérhæfðir.


Aðrir þættir sem þarf að hafa í huga við val á lækni:

  • Eru hann tengdur virtum háskóla eða rannsóknarsjúkrahúsi?

  • Passar „hans karakter“ við þinn persónuleika? Er hann góður greingaraðili? Hefur hann samkennd? Vill hann vera þinn félagi í þessu ferli? Virðist hann hafa áhuga á því sem er mikilvægt fyrir þig?

Mundu:

  • Taktu þér tíma.

  • Fáðu aðra eða jafnvel þriðju skoðun ef þér líður ekki vel.

  • Gættu varúðar við ráðleggingar sem virðast mjög áleitnar, t.d. „skurðaðgerð er best“ eða „geislun er best“ eða „borðaðu þessa jurt og krabbameinið læknast. Forðastu allt heilbrigðisstarfsfólk sem virðist vera að "selja" þér eitthvað

  • · Það eru margar bækur, vefsíður og blogg skrifuð eftir „sérfræðinga“ sem halda því fram að meðferð þeirra sé best: Farðu varlega í þessum efnum. Fyrir nákvæmar upplýsingar, notaðu virtar vefsíður eins og www.krabb.is eða www.framfor.is og þær sem þinn læknir mælir með

  • Þegar þú hefur skuldbundið þig er traust lykillinn, en haltu áfram að vera þinn eigin málsvari: spyrja spurninga, rannsaka og vera forvitinn

Ef þú ert í góðu sambandi við aðalmeðferðaðaðilann, getur þú tengt vel við þína greiningu, meðferð og ákvarðanatöku. Umönnunaraðili þinn getur boðið fram sína aðstoð við að þú hugsir um stóru myndina af heilsu þinni og getur hjálpað þér að taka flóknar ákvarðanir.


Fjölskylda

Fjölskylda þín vill styðja þig. Tilfinningar um vanmátt eru algengt áhyggjuefni í kringum krabbameinsgreiningu; ástvinir þínir vilja - eða jafnvel þurfa - að gera eitthvað þannig að þeim líði eins og þeir séu að hjálpa þér. Venjulega getur þetta verið frábært. Eftir krabbameinsgreiningu, gæti þér fundist óljóst hve mikinn stuðning þú ættir að samþykkja, biðja um eða hafna. Haltu þessum möguleikum opnum og góð og regluleg samskipti eru lykillinn.


Ábendingar til maka, umönnunaraðila og fullorðinna barna

  • Samþykktu hvernig hann munt taka ákvarðanir.

  • Vertu tilbúin/n fyrir breytingar á hans venjum.

  • Skilja að það geti verið margs konar tilfinningar í kringum breytingar á hans getu.

  • Aflaði þér upplýhsinga um hvaða áhrif meðferðir geti haft á skap, líkamlega getu, þvaglát, starfsemi þarma eða kynlíf.

  • Það er eðlilegt að upplifa einmanaleika og ótta – leitaðu að stuðningshópi fyrir maka og/eða umönnunaraðila og þú þarft að hvetja sjúklinginn til að mæta í stuðningshóp

Ábendingar fyrir ung börn (barnabörn)

  • Hafðu börn upplýst og komdu fram við þau sem hluta af liðinu.

  • Svaraðu spurningum heiðarlega, eftir aldri.

  • Vertu raunsær en bjartsýnn í þínum samskiptum.

  • Fyrir eldri börn gætirðu hvatt þau til þess taka þátt í starfi stuðningshóps. Hafðu samband við barnalækni, sálfræðing eða meðferðaraðila til að fá tillögur um hversu miklum upplýsingum þú ættir að deila


Stuðningsnetið þitt

Fyrir utan þína nánustu fjölskyldu aðila, þá gætu verið í kringum þig margir nánir vinir og samstarfsfólk sem er mjög annt um þig og hefur sterka löngun til að hjálpa og vera til staðar. Ekki vera feiminn við að láta alla þessa aðila vita af ákveðnum hlutum gætu verið gagnlegir fyrir þig.


Sem dæmi um þetta gætu verið skutl í meðferð, borða saman, umhygga fyrir ungum börnum eða aðstoða við erfið húsverk meðan á bata stendur. Þó þér finnist þetta oft yfirþyrmandi, ekki vera hræddur við að þiggja stuðning fjölskyldu og vina. Á hinn bóginn, ekki vera feiminn við að segja kurteislega „nei“ ef þú telur ekki er þörf fyrir þennan stuðning. Mikið efni er til á netinu til að skipuleggja úrræði stuðningsaðila á meðan á meðferð stendur, svo sem https://www.framfor.is/adstandendur.

Takktu á þessu verkefni með fjölskyldu, vinum og öðrum með eðlilegum væntingum og leitaðu stuðnings þar sem það er viðeigandi.


Margir vinir og vandamenn velja að verða virkir í krabbameinssamfélagi (www.framfor.is - www.krabb.is) til að draga úr algengri tilfinning um vanmátt sem getur fylgt krabbameinsgreiningu á ástvini. Frekari upplýsingar um þetta er að finna á www.framfor.is


Tilvísun efnis er í handbók frá www.pcf.org

0 views0 comments
bottom of page