Upplýsingavefur fyrir karla sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli
Þessi upplýsingavefur er rekinn af Krabbameinsfélaginu Framför, félagi karla með krabbamein í blöðruhálskirtli í samstarfi við Félag þvagfæraskurðlækna á Íslandi, Krabbameinsfélag Íslands og Ljósið endurhæfingarmiðstöð.
Á þessu vefsvæði eru faglegar upplýsingar (viðurkenndar af Félagi þvagfæraskurðlækna á Íslandi) fyrir karla sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendur. Hjá þeim sem standa að þessu vefsvæði er boðið upp á endurgjaldslausa ráðgjöf, stuðning, jafningjafræðslu fyrir þá sem greinast og aðstandendur, ráðgjöf hjá fagfólki (sálfræðingi, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðinga), endurhæfingu og þátttöku í starfi stuðningshópa.
Kynningarefni við greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli
-
Bæklingur með spurningum við greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli
-
Bæklingur um fyrstu skrefin eftir greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli
-
Bæklingur fyrir nýgreinda karla með krabbamein í blöðruhálskirtli
-
Upplýsingar fyrir maka karla með krabbamein í blöðruhálskirtli
Krabbameinsfélagið Framför er með ráðgjöf við greiningu á krabbameini í böðruhálskirtli og býður upp á jafningjastuðning og ráðgjöf fagaðila í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands og Ljósið.
Stuðningshópar hjá Krabbameinsfélaginu Framför
Krabbameinsfélagið Framför er með stuðningshópa fyrir karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendur.
-
Frískir menn - fyrir karla í virku eftirliti
-
Blöðruhálsar/Góðir hálsar - fyrir karla eftir meðferð
-
Traustir makar - fyrir maka karla sem hafa farið í meðferð
Skráning í stuðningshóp hjá Framför